Þriðjudagur 27. maí.
Ennþá yndislegt veður og sumarfrí nálgast. Mig vantar tjaldvagn. Ég er búin að sjá að maður getur ekki ferðast á Íslandi án þess að eiga fellihýsi en því miður hef ég ekki efni á því en ég gæti kannski nurlað fyrir einum tjaldvagni. Við fórum í tjaldvagna útilegu og ég var svo glöð þegar við vorum búin að tjalda, góðar dýnur langt frá jörðu og bara hlakkaði til að fara að sofa. Þetta var á Akranesi en við vorum að fylgja yngri peyjanum á fótboltamót. Við komum degi á undan öðrum og gátum fengið það tjaldsvæði sem við vildum. Svo byrja bílarnir að streyma að daginn eftir. Það voru allir á jeppum og allir með fellihýsi hvert öðru glæsilegra og allt í einu var tjaldvagninn ekki svo flottur lengur. Sum fellihýsin voru meira að segja með sturtu. En eins og ég sagði áðan þá verð ég að gera mér að góðu tjaldvagn og á ekki einu sinni fyrir honum en ég ætla samt að kaupa mér svoleiðis. Fer í bæinn um helgina, en næsta lota byrjar á mánudag. Please hafið þetta notalega sumarönn með ekki miklum væntinum. Ég verð að komast í frí. Ég talaði við manninn minn í gærkvöldi og við eigum aftur stefnumót í kvöld kl. 21:00. Hva ég elska tæknina. Þarna sátum ég og strákarnir við tölvuskjáinn og horfðum beint á myndarlega manninn minn sem sat á skrifstofu á lítilli eyju þar sem búa 3 manneskjur. Hann sást mjög vel, sá okkur mjög vel og við heyrðum mjög vel í hvort öðru. Jæja nú þarf ég að rolast til að klára restina.
kveðja í bili
eva